Talnagrunnur
The 3 steps are Choose table, Choose variable and Show result. You are currently at Velja breytu

Staðgreiðsluskyldar launagreiðslur eftir atvinnugreinum og búsetu - frá janúar 2008

Velja breytur

5.4.2024
Milljónir króna/fjöldi
TEK02003
Now you have come to the page, Choose variable. This page give you the oportunity to select which variables and values you want to display in your result of the table. A variable is a property of a statistical unit. The page is divided into several boxes, one for each variable, where you can select values by click to highlight one or more values. It always starts with the statistics variable which is the main value counted in the table.
Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.2008M01 , 2008M02 , 2008M03 ,

Valið 1 Alls 194

Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.Alls , Höfuðborgarsvæði , Suðurnes ,

Valið 0 Alls 74

Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.Alls , A - Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar , A: 01-02 - Landbúnaður og skógrækt ,

Valið 0 Alls 16

Valið 0 Alls 3

Fjöldi valinna reita er:
(Hámarksfjöldi er 100.000)

Framsetning á skjá takmarkast við 10.000 línur og 100 dálka

Fjöldi valinna reita er yfir hámarki 100.000
Grunngögn byggja á stjórnsýsluskrá frá Skattinum, staðgreiðsluskrá, en þeir sem teljast launagreiðendur samkvæmt lögum um opinber gjöld nr. 45/1987 ber að skila mánaðarlega skilagrein með sundurliðuðum upplýsingum um hvern þann einstakling sem þeir greiða staðgreiðsluskylda greiðslu til Skattsins. Við úrvinnslu hefur Hagstofan auðgað gögn svo hægt sé að nýta þau til hagskýrslugerðar og bætt við bakgrunnsbreytum úr mannfjöldagögnum, svo sem kyn, aldur, búsetu og bagrunn. Um er að ræða bráðabirgðatölur og geta tölur breyst vegna síðbúinna skila eða leiðréttinga frá greiðendum staðgreiðsluskyldra launa. Það á einkum við um nýjustu mánuði talnaefnis þar sem tímanleiki birtinga er mikill.

Búseta

Búseta er annars vegar sveitarfélaganúmer eða landshluti þar sem einstaklingur er með lögheimili þann mánuð sem hann fær greiddar staðgreiðsluskyldar greiðslur. Vakin er athygli á því að búseta byggir lögheimilsskráningu launafólks sem fær greiddar launagreiðslur en ekki búsetu launagreiðanda. Búseta miðast við sveitarfélagaskipan 1. janúar 2023.

Atvinnugrein

Atvinnugrein launagreiðanda er samkvæmt ÍSAT2008 og byggir á aðalatvinnugrein samkvæmt fyrirtækjaskrá Hagstofunnar.

Eining

Upphæð

Upphæð staðgreiðsluskyldra launagreiðslna er í íslenskum krónum (milljónir króna) og á verðlagi hvers mánaðar. Þær innihalda einungis þær launagreiðslur til launafólks sem falla undir staðgreiðslu en það eru stærsti hluti launatekna vegna atvinnu sem greiddar eru mánaðarlega til launafólks. Um er að ræða hvers konar endurgjald fyrir vinnu, laun og aðrar starfstengdar greiðslur eins og ökutækjastyrkir, hlunnindi, desember- og orlofsuppbót, eingreiðslur, flutningspeningar, ferðapeningar, dagpeningar - aðrar en þær sem heimilt er að halda utan staðgreiðslu samkvæmt reglugerð þar um. Fjármagnstekjur eru ekki hluti talnaefnis né tekjur einyrkja með rekstur á eigin kennitölu sem greiða sjálfum sér reiknað endurgjald. Einnig launagreiðslur til einstaklinga sem eru ekki gefnar upp til skatts.

Fjöldi einstaklinga

Fjöldi einstaklinga sem fær greidd staðgreiðsluskyld laun er talning á hverjum þeim sem fær greidd staðgreiðsluskyld laun frá launagreiðanda. Í tilfelli launagreiðslna er ekki gerður greinamunur á því hvort viðkomandi sé í fullu starfi eða hlutastarfi og ekkert lágmarksviðmið er á launagreiðslum. Í einhverjum tilfellum getur launaupphæð verið mjög lág. Hver einstaklingur sem fær launagreiðslur telst einu sinni óháð launaupphæð. Athugið að birtar atvinnugreinar geta skarast og þar af leiðir að ef allir flokkar eru lagðir saman fæst ekki sama niðurstaða og heildartala. Þeir einstaklingar sem fá greidd laun hjá fleiri en einum launagreiðanda í ólíkum birtum atvinnugreinaflokkum teljast í báðum flokkum en heildartala (alls) telur hvern móttakanda launagreiðslu einungis einu sinni.

Fjöldi launagreiðenda

Fjöldi launagreiðenda sem greiða staðgreiðsluskyld laun eru allir aðilar sem skila sundurliðun launagreiðslna fyrir a.m.k. einn móttakanda launa til Skattsins. Talning launagreiðenda byggist á auðkenni lögaðila sem tengist kennitölu hans. Hver kennitala lögaðila telst því sem einn greiðandi. Athugið að birtar atvinnugreinar geta skarast og þar af leiðir að ef allir flokkar eru lagðir saman fæst ekki sama niðurstaða og heildartala. Heildartala (alls) telur hvern launagreiðanda einungis einu sinni.