Talnagrunnur
The 3 steps are Choose table, Choose variable and Show result. You are currently at Velja breytu

Skuldastaða fjölskyldna sem hlutfall af tekjum eftir fjölskyldugerð 2015-2018

Velja breytur

10.7.2018
Hlutfall/Fjöldi
2015-2018
SKU01006
Now you have come to the page, Choose variable. This page give you the oportunity to select which variables and values you want to display in your result of the table. A variable is a property of a statistical unit. The page is divided into several boxes, one for each variable, where you can select values by click to highlight one or more values. It always starts with the statistics variable which is the main value counted in the table.

Valið 1 Alls 4

Valið 0 Alls 10

Valið 0 Alls 8

Fjöldi valinna reita er:
(Hámarksfjöldi er 100.000)

Framsetning á skjá takmarkast við 10.000 línur og 100 dálka

Fjöldi valinna reita er yfir hámarki 100.000
Talnaefni er byggt á sérstakri gagnasöfnun frá lánastofnunum og fjármálafyrirtækjum. Ekki eru uppi áform um áframhaldandi uppfærslu á þessu talnaefni. Niðurstöður ársins 2018 eru bráðabirgðaniðurstöður. Umfjöllun um gögnin og aðferðafræði má finna í hagtíðindum um skuldastöðu og greiðslubyrði fjölskyldna 2015-2018 sem var gefið út 10. júlí 2018, sjá hér: https://hagstofa.is/utgafur/utgafa/lifskjor/skuldastada-og-greidslubyrdi-fjolskyldna-2015-2018/ Ráðstöfunartekjur Ráðstöfunartekjur eru skilgreindar sem þær heildartekjur sem einstaklingur hefur til ráðstöfunar þegar búið er að taka tillit til skatta og greiðslna í lífeyrissjóð. Með heildartekjum er átt við allar þær tekjur sem gefnar eru upp á skattframtali, það er að segja atvinnutekjur, fjármagnstekjur og ýmsar aðrar tekjur á borð við lífeyrisgreiðslur, greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins og vaxta- og barnabætur. Skattar og bætur reiknast á greiðslugrunni, það er að segja, miðast við það ár sem þeir eru greiddir. Ráðstöfunartekjur fyrir árið 2018 byggja á ráðstöfunartekjum í skattframtali 2017 uppreiknaðar miðað við launavísitölu frá júní 2017 til maí 2018. Skuldastaða fjölskyldna Skuldastaða fjölskyldna er birt sem hlutfall af ráðstöfunartekjum. Ef ráðstöfunartekjur fjölskyldunnar eru til dæmis 1 milljón krónur á mánuði eða 12 milljónir króna á ári en skuldir 30 milljónir króna, þá er skuldastaðan 250%, það er að segja skuldir eru 250% af ráðstöfunartekjum fjölskyldunnar. Skuldastaða er tekin úr skattframtali og nær til allra skulda sem taldar eru fram til skatts, þar með taldar opinberar skuldir. Ef einhver í fjölskyldunni var með skráð stakt lán í sundurliðunarblaði RSK yfir aðrar skuldir sem var yfir 100.000 kr. og ekki hjá kreditkortafyrirtækjum, gagnaveitendum eða opinberum aðilum var sú fjölskylda útilokuð úr safninu. Hafa ber í huga að þar eru eingöngu forskráðar skuldir frá fjármálastofnunum auk annarra skulda sem framteljandi sjálfur tínir til, en oft verður misbrestur á. Vísbendingar eru um að langstærstur hluti svokallaðra smálána sé ekki talinn fram sem og aðrar óreglulegar skuldir. Fjölskyldugerð Hér er fjölskylda skilgreind sem einstaklingar sem búa saman og deila fjölskyldunúmeri auk þess sem einstaklingar á aldrinum 18 til 24 ára sem búa á sama heimili og þeir gerðu fyrir 18 ára aldur halda fyrra fjölskyldunúmeri. Hjón og sambýlisfólk eru skilgreind samkvæmt þjóðskrá. Fjöldi Hluti af safninu er útilokaður ef einhver í fjölskyldunni var með áætlað framtal, hafði engar ráðstöfunartekjur á árinu, bjó erlendis, var í eigin atvinnurekstri eða var með lán yfir 100 þúsund krónur sem var ekki hjá kreditkortafyrirtækjum, gagnaveitendum eða opinberum aðilum. Samtals valda útilokanir því að rúmlega 70% fjölskyldna mynda grunn fyrir þessar niðurstöður. Fjöldatölur í töflum skal því fyrst og fremst nota til að meta innbyrðisvægi hópa en ekki til að telja óleiðrétt fjölda fjölskyldna.