Talnagrunnur
The 3 steps are Choose table, Choose variable and Show result. You are currently at Velja breytu

Laun eftir launþegahópi, starfsstétt og kyni 2014-2022

Velja breytur

5.5.2023
Þúsundir króna
Hagstofa Íslands
VIN02002
Now you have come to the page, Choose variable. This page give you the oportunity to select which variables and values you want to display in your result of the table. A variable is a property of a statistical unit. The page is divided into several boxes, one for each variable, where you can select values by click to highlight one or more values. It always starts with the statistics variable which is the main value counted in the table.

Valið 1 Alls 9

Valið 0 Alls 5

Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.Alls , Stjórnendur (1) , Sérfræðingar (2) ,

Valið 0 Alls 11

Valið 0 Alls 3

Valið 0 Alls 9

Valið 0 Alls 6

Fjöldi valinna reita er:
(Hámarksfjöldi er 100.000)

Framsetning á skjá takmarkast við 10.000 línur og 100 dálka

Fjöldi valinna reita er yfir hámarki 100.000
Þessi tafla var leiðrétt 5.5.2023 klukkan 17:05. Bráðabirgðaniðurstöður. Laun eru endurgjald sem einstaklingur fær greitt frá vinnuveitanda fyrir vinnu sína.
Laun eru mánaðarlaun í þúsundum króna.
Greiddar stundir eru mánaðarlegar stundir.
Niðurstöður byggja á launarannsókn Hagstofu Íslands sem er úrtaksrannsókn.
Niðurstöður ná til eftirfarandi atvinnugreina á almennum markaði: Framleiðsla (C), rafmagns-, gas- og hitaveitur (D), vatnsveita, fráveita, meðhöndlun úrgangs og afmengun (E), byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F), heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (G), flutningur og geymsla (H), upplýsingar og fjarskipti (J), fjármála- og vátryggingastarfsemi (K). Í atvinnugrein J vantar upplýsingar um lítil fyrirtæki og fyrirtæki á sviði upplýsingatækni.
Árið 2018 bættist atvinnugreinin rekstur gististaða og veitingarekstur (I) í gagnasafnið sem niðurstöður byggja á. Við samanburð á milli ára verður að hafa í huga að gagnasafn hefur breyst. T.d. á árinu 2021 var hefur gagnasafnið stækkað einkum í atvinnugreinum mannvirkjagerð (F) og verslun (G).
Atvinnugreinarnar opinber stjórnsýsla og varnarmál; almannatryggingar (O), fræðslustarfsemi (P) og heilbrigðis- og félagsþjónusta (Q) byggja eingöngu á úrtaki opinberra starfsmanna, þ.e. starfsmanna ríkis og sveitarfélaga. Þeir eru um 95% þýðis í O, tæplega 90% í P og 80% í Q. Að auki eru í gagnasafninu starfsmenn ríkis og sveitarfélaga í öðrum atvinnugreinum en þeirra stærst er menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi (R). Ekki eru birtar upplýsingar um atvinnugreinina sérstaklega þar sem að í launarannsókn vantar upplýsingar um almennan markað sem er um 50% atvinnugreinarinnar.
Einstaklingur telst fullvinnandi ef samanlagður fjöldi greiddra stunda í dagvinnu (þ.e. fyrir dagvinnu og vaktavinnu) er a.m.k. 90% af mánaðarlegri dagvinnuskyldu. Mánaðarleg dagvinnuskylda er breytileg eftir kjarasamningum en algengast er að hún sé á bilinu 159,3 til 173,3. Hafa þarf í huga að samningar um styttingu vinnutímans komu til framkvæmda á árinu 2020 á almennum vinnumarkaði en á árinu 2021 hjá opinberum starfsmönnum. sjá frétt https://www.hagstofa.is/utgafur/frettasafn/laun-og-tekjur/laun-2020/
Til þess að upplýsingar um ákveðna hópa séu birtar þurfa að vera að minnsta kosti 50 einstaklingar í þremur rekstrareiningum í hópnum.
Niðurstöður ná til einstaklinga 18 ára og eldri í gagnasafni launarannsóknar.

Launþegahópur

Stuðst er við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn ESA 2010 við ákvörðun um skiptingu vinnumarkaðarins í almennan vinnumarkað og opinbera starfsmenn. Opinberir starfsmenn teljast þeir sem vinna hjá ‚hinu opinbera‘ (S.13). Til hins opinbera telst rekstur ríkis og sveitarfélaga sem er undir stjórn þeirra og er rekinn að meiri hluta fyrir skatttekjur. Aðrir teljast þá til almenns vinnumarkaðar, þar með talið fyrirtæki í eigu opinberra aðila sem rekin eru að meiri hluta fyrir tekjur af sölu á vöru eða þjónustu.

Starfsstétt

Starfsstéttir eru samkvæmt Ístarf95 flokkunarkerfinu. Að auki er tveimur stéttum bætt við, en það eru starfsstéttirnar iðnaðarmenn og verkafólk: Iðnaðarmenn eru í starfsstéttum 7, 8 og 9 og með stöðutölu 2 eða 3 (iðnmenntaðir eða iðnmenntaðir verk- og flokksstjórar); verkafólk er í starfsstéttum 7, 8 og 9 og með stöðutölu 0 eða 1 (almennt starfsfólk eða verk- og flokksstjórar).

Ár

2018

Árið 2018 bættist atvinnugreinin rekstur gististaða og veitingarekstur (I) í gagnasafnið sem niðurstöður byggja á. Hafa verður þetta í huga við samanburð á milli ára að gagnasafnið hefur breyst og breytingar á milli ára geta meðal annars verið vegna breyttrar samsetningar gagnasafnsins.

Laun og vinnutími

Grunnlaun - alls

Grunnlaun eru greidd mánaðarlaun fyrir dagvinnu, grunndagvinnulaun, án allra aukagreiðslna. Grunnlaun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í laun fyrir fullt starf.
Í einhverjum tilfellum eru launamenn með fastlaunasamninga og eru þá öll greidd laun færð sem grunnlaun í launakerfi. Í slíkum samningum er ekki haldið utan um yfirvinnugreiðslur eða aðrar launagreiðslur sérstaklega. Fastlaunasamningar finnast í öllum starfsstéttum en eru algengastir hjá stjórnendum og sérfræðingum.

Grunnlaun - hlutastarf

Grunnlaun - fullvinnandi

Grunnlaun eru greidd mánaðarlaun fyrir dagvinnu, grunndagvinnulaun, án allra aukagreiðslna.
Í einhverjum tilfellum eru launamenn með fastlaunasamninga og eru þá öll greidd laun færð sem grunnlaun í launakerfi. Í slíkum samningum er ekki haldið utan um yfirvinnugreiðslur eða aðrar launagreiðslur sérstaklega. Fastlaunasamningar finnast í öllum starfsstéttum en eru algengastir hjá stjórnendum og sérfræðingum.

Regluleg laun - alls

Regluleg laun eru greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags og bónusgreiðslur sem tilheyra launaliðum sem eru gerðir upp á hverju útborgunartímabili hjá launagreiðanda. Dæmi um slíkar greiðslur geta verið föst yfirvinna, fastar álagsgreiðslur, bónusar í framleiðslu, sölubónusar, vaktaálag og eftirvinna. Regluleg laun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í laun fyrir fullt starf.
Við samanburð á reglulegum launum milli starfa eða starfsstétta er gott að hafa í huga að í þeim störfum þar sem fastlaunasamningar eru algengir eða föst yfirvinna þá er ekki sérstaklega haldið utan um yfirvinnugreiðslur í launakerfi og eru þær greiðslur því hluti af reglulegum launum.

Regluleg laun - hlutastarf

Regluleg laun eru greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags- og bónusgreiðslur sem tilheyra launaliðum sem eru gerðir upp á hverju útborgunartímabili hjá launagreiðanda. Dæmi um slíkar greiðslur geta verið föst yfirvinna, fastar álagsgreiðslur, bónusar í framleiðslu, sölubónusar, vaktaálag og eftirvinna. Regluleg laun hlutastarfsfólks eru umreiknuð í laun fyrir fullt starf.

Regluleg laun - fullvinnandi

Regluleg heildarlaun - fullvinnandi

Regluleg heildarlaun eru regluleg laun að viðbættum launum fyrir mælda yfirvinnu.

Heildarlaun - fullvinnandi

Heildarlaun eru öll laun einstaklingsins, þ.e. regluleg heildarlaun auk ýmissa óreglulegra greiðslna s.s. orlofs- og desemberuppbótar, eingreiðslna, ákvæðisgreiðslna og uppgjörs vegna uppmælinga. Við útreikninga er hvorki tekið tillit til hlunninda né akstursgreiðslna.

Greiddar stundir - fullvinnandi

Greiddar stundir eru mánaðarlegar stundir fullvinnandi einstaklinga, í dagvinnu, vaktavinnu, eftirvinnu, uppmælingum eða yfirvinnu. Til að umreikna mánaðarstundir í vikustundir þarf að deila í greiddar stundir með (52/12).
Greiddar stundir geta falið í sér bæði vanmat og ofmat á unnum stundum. Til að mynda getur verið vanmat á unnum stundum hjá þeim launamönnum sem eru með fastlaunasamninga en þá eru yfirvinnulaun hluti af föstum launum starfsmanna og yfirvinnutímar ekki skráðir í launakerfi. Ofmat á unnum stundum er fyrst og fremst vegna greiddra stunda í veikindum og orlofi auk þess sem að í einhverjum tilfellum er launauppbót greidd í formi fastra yfirvinnutíma án þess að tímarnir séu unnir.

Eining

Fjöldi athugana

Fjöldi athugana í gagnasafni launarannsóknar.

Vægi

Vægi athugana í safninu sem niðurstöður byggja á. Vægið byggir á fjölda athugana vegnum með vog launarannsóknar. Þannig fær launamaður annars vegar vog fyrirtækisins sem hann starfar hjá og hins vegar vog miðað við fjölda mánaða sem hann starfar. Þetta er gert til þess að láta úrtakið endurspegla sem best þýði launarannsóknar sem eru starfsmenn hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum með fleiri en 10 starfsmenn.