Talnagrunnur
The 3 steps are Choose table, Choose variable and Show result. You are currently at Velja breytu

Vísitölur launa á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og mánuðum frá 2015

Velja breytur

22.4.2024
Vísitala/hlutfall
2015-
Hagstofa Íslands
LAU04007
Now you have come to the page, Choose variable. This page give you the oportunity to select which variables and values you want to display in your result of the table. A variable is a property of a statistical unit. The page is divided into several boxes, one for each variable, where you can select values by click to highlight one or more values. It always starts with the statistics variable which is the main value counted in the table.
Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.2015M01 , 2015M02 , 2015M03 ,

Valið 1 Alls 109

Valið 0 Alls 2

Valið 0 Alls 9

Valið 0 Alls 3

Fjöldi valinna reita er:
(Hámarksfjöldi er 100.000)

Framsetning á skjá takmarkast við 10.000 línur og 100 dálka

Fjöldi valinna reita er yfir hámarki 100.000
Vísitölur einstakra undirhópa eru reiknaðar og birtar 80 til 85 dögum eftir að
viðmiðunarmánuði lýkur. Heildarvísitölur launavísitölu og vísitölu grunnlauna
eru birtar um 20 dögum eftir að viðmiðunarmánuði lýkur og má finna í talnaefni
undir Launavísitala eftir mánuðum frá 1989 og Vísitölur launa eftir mánuðum frá 2015.
Frá árinu 2018 er stuðst við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn ESA 2010 við
ákvörðun um skiptingu vinnumarkaðarins í almennan vinnumarkað og opinbera
starfsmenn. Hið opinbera er allur rekstur undir stjórn ríkis og sveitarfélaga
sem er rekinn að meiri hluta fyrir skatttekjur. Þeir sem starfa fyrir hið opinbera
teljast opinberir starfsmenn en aðrir teljast til almenns vinnumarkaðar, líka þeir
sem starfa fyrir fyrirtæki í eigu hins opinbera sem rekin eru að meiri hluta fyrir
tekjur af sölu vöru eða þjónustu. Fram til ársins 2017 voru opinberir starfsmenn
skilgreindir sem starfsmenn sem fengu greidd laun frá sveitarfélögum og fjársýslu
ríkisins. Aðrir töldust til almenns vinnumarkaðar.
Launavísitala og vísitala grunnlauna eru byggðar á launarannsókn Hagstofunnar sem er
úrtaksrannsókn. Í úrtaki launarannsóknar frá 2019 eru eftirfarandi
atvinnugreinabálkar: Framleiðsla (C), rafmagns-, gas- og hitaveitur (D), vatnsveita,
fráveita, meðhöndlun úrgangs og afmengun (E), byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F),
heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (G), flutningur og
geymsla (H), rekstur gisithúsa og veitingarekstur (I), upplýsingar og fjarskipti (J,
eingöngu stór fyrirtæki í deildum 58-61), fjármála- og vátryggingastarfsemi (K),
starfsemi arkitekta og verkfræðinga (M, eingöngu deild 71), almannatryggingar (O),
fræðslustarfsemi (P) og heilbrigðis- og félagsþjónusta (Q) og menningar-, íþrótta- og
tómstundastarfsemi (R). Atvinnugreinar O, P, Q og R byggja eingöngu á opinberum
starfsmönnum, starfsmönnum ríkisins sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins og
starfsmönnum sem fá greidd laun frá sveitarfélögum í úrtaki.
Grunnur desember 2018=100. Allir útreikningar eru miðaðir við breytingar með fullum aukastöfum. Vegna fækkunar
aukastafa kann að skapast ósamræmi milli birtra talna.

Vísitala

Launavísitala

Launavísitala byggir á tímakaupi reglulegra launa í hverjum mánuði. Regluleg
laun eru greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða
dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags- og
bónusgreiðslur, svo sem föst yfirvinna, sem gerðar eru upp á hverju
útborgunartímabili.

Vísitala grunnlauna

Vísitala grunnlauna byggir á tímakaupi grunnlauna í hverjum mánuði. Grunnlaun
eru greidd mánaðarlaun fyrir dagvinnu, án allra aukagreiðslna. Hjá launafólki
sem er með fastlaunasamninga eru öll greidd laun færð sem grunnlaun í launakerfi.
Í slíkum samningum er ekki haldið utan um yfirvinnugreiðslur eða aðrar
launagreiðslur sérstaklega. Fastlaunasamningar finnast í öllum starfsstéttum en
eru algengastir hjá stjórnendum og sérfræðingum.

Atvinnugrein

Veitustarfsemi (D_E)

Atvinnugreinin veitustarfsemi (D_E) inniheldur tvo undirbálka. Rafmagns-, gas- og
hitaveitur (D) og vatnsveita, fráveita, meðhöndlun úrgangs og afmengun (E).

Upplýsingar og fjarskipti (J)

Fram til 2017 náðu gögn eingöngu til deilda 58-61. Upplýsingar vantaði um deildir
62-63 það er starfsemi fyrirtækja á sviði upplýsingatækni.
Þekja launarannsóknar í atvinnugrein J á almennum markaði er ófullnægjandi á árinu
2018 og því er niðurbroti tímabundið hætt.

Eining

Ársbreyting, %

Breyting síðustu 12 mánuði.

Mánuður: 2022M07 , Vísitala: Vísitala grunnlauna

Þann 16. desember 2022 voru röng gildi birt fyrir júlí 2022.
Tölur voru leiðréttar 13. janúar 2023.

Mánuður: 2022M08 , Vísitala: Vísitala grunnlauna

Þann 16. desember 2022 voru röng gildi birt fyrir ágúst 2022.
Tölur voru leiðréttar 13. janúar 2023.

Mánuður: 2022M09 , Vísitala: Vísitala grunnlauna

Þann 21. desember 2022 voru röng gildi birt fyrir september 2022.
Tölur voru leiðréttar 13. janúar 2023.