Talnagrunnur
The 3 steps are Choose table, Choose variable and Show result. You are currently at Velja breytu

Vinnutími og fyrirkomulag vinnunnar eftir bakgrunni og kyni 2008-2017

Velja breytur

5.6.2019
Hlutfall/ vikmörk
VIN01210
Now you have come to the page, Choose variable. This page give you the oportunity to select which variables and values you want to display in your result of the table. A variable is a property of a statistical unit. The page is divided into several boxes, one for each variable, where you can select values by click to highlight one or more values. It always starts with the statistics variable which is the main value counted in the table.

Valið 1 Alls 10

Valið 0 Alls 3

Valið 0 Alls 2

Valið 0 Alls 3

Valið 0 Alls 3

Fjöldi valinna reita er:
(Hámarksfjöldi er 100.000)

Framsetning á skjá takmarkast við 10.000 línur og 100 dálka

Fjöldi valinna reita er yfir hámarki 100.000
Niðurstöðurnar koma úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Taflan var leiðrétt 19. september 2019 vegna þess að breytuheiti höfðu víxlast, það sem nú heitir vinnutími hét óhefðbuninn vinnutími og það sem nú heitir óhefðbundinn vinnutími vinnutími

Jafnvægi atvinnu og einkalífs

Óhefðbundinn vinnutími

Fólk telst vinna óhefðbundinn vinnutíma ef það svarar því til að það vinni oft á næturnar, kvöldin, laugardögum eða sunnudögum.

Vaktavinna

Vaktavinna er skilgreint sem vinnufyrirkomulag þar sem starfsfólk leysir hvert annað af hólmi á tiltekinni starfsstöð samkvæmt fyrirframgefnu skipulagi sem leiðir til þess að fólk vinnur á ólíkum tímum dags á mismunandi vikudögum eða tímabilum. Vaktavinna getur falið í sér kvöld-, nætur- og helgavinnu.

Vinnutími

Með vinnutíma er átt við heildarvinnutíma svaranda i aðal- og aukastarfi í viðmiðunarvikunni.

Bakgrunnur

Innflytjendur

Með innflytjanda er átt við einstakling sem er fæddur erlendis, á foreldra sem báðir eru fæddir erlendis auk þess að eiga afa og ömmur sem öll eru fædd erlendis.

Innlendir

Líta má á flokkinn innlendir sem safnheiti. Innlendir geta því verið einstaklingar með engan erlendan bakgrunn, einstaklingar með engan erlendan bakgrunn sem eru fæddir erlendis, einstaklingar sem eru fæddir á Íslandi og annað foreldri er erlent, og einstaklingar sem eru fæddir erlendis, eiga foreldra sem fæddir eru erlendis en a.m.k. eina ömmu eða afa sem fædd/ur er á Íslandi. Annarrar kynslóðar innflytjendur flokkast hér sem innlendir

Eining

Vikmörk, ±

Niðurstöðurnar koma úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands sem byggir á úrtaki og því þarf að gera ráð fyrir ákveðinni óvissu í niðurstöðum. Til að meta óvissuna eru reiknuð öryggisbil (e. confidence interval) fyrir niðurstöður rannsóknarinnar. Með öryggisbilinu er því reynt að leggja mat á hversu nákvæmlega úrtaksgildið segir til um hið raunverulega gildi í þýðinu. Þegar öryggisbil er reiknað er stuðst við útreikninga á staðalvillu metinnar stærðar. Öryggisbilið nær jafnlangt upp fyrir og niður fyrir töluna, og vikmörk þess eru lögð við töluna og dregin frá henni. Ef metin stærð er 10% og öryggisbil ±1,2 eru neðri vikmörk 8,8 og efri vikmörk 11,2. Þegar tvær tölur eru bornar saman til að athuga hvort munurinn á þeim sé nægjanlega mikill til að teljast tölfræðilega marktækur er venja fyrir því að skoða hvort öryggisbil beggja talna skarist. 95% öryggismörk eru reiknuð með því að margfalda staðalvilluna fyrir metna stærð með 1,96. Segja má að slíkt öryggisbil innihaldi þýðismeðaltalið með 95% öryggi. Ef röð tilviljunarúrtaka af sömu stærð yrðu tekin úr sama þýði, þá myndi 95% öryggisbilana innihalda þýðismeðaltalið. Nákvæmnisviðmið þessarar birtingar er að birta ekki metna stærð með stærri staðalvillu en 5%.