Talnagrunnur
The 3 steps are Choose table, Choose variable and Show result. You are currently at Velja breytu

Starfandi eftir atvinnuvegum 1870-2016 með Eining, Skipting og Ár

Velja breytur

1.12.2017
Fjöldi/hlutfall
SOG05005
Now you have come to the page, Choose variable. This page give you the oportunity to select which variables and values you want to display in your result of the table. A variable is a property of a statistical unit. The page is divided into several boxes, one for each variable, where you can select values by click to highlight one or more values. It always starts with the statistics variable which is the main value counted in the table.

Valið 0 Alls 2

Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.Starfandi alls (einstaklingar/ársverk) , 1. Landbúnaður og fiskveiðar , 11. Landbúnaður ,

Valið 0 Alls 17

Field for searching for a specific value in the list box. This is examples of values you can search for.1870 , 1880 , 1890 ,

Valið 0 Alls 64

Fjöldi valinna reita er:
(Hámarksfjöldi er 100.000)

Framsetning á skjá takmarkast við 10.000 línur og 100 dálka

Fjöldi valinna reita er yfir hámarki 100.000
Taflan er tilraun til þess að sýna fjölda starfandi samkvæmt
atvinnuvegaflokkun ISIC-1968 á öllu tímabilinu 1870-2016. Gögnin á því
tímabili eru þó þríþætt að upplagi. Árin 1870-1960 byggja í aðalatriðum á
manntölum samkvæmt niðurstöðum sem birtust í Hagskinnu þegar hún kom út
árið 1997.
Á árunum 1963-1990 birti Hagstofan árlegar tölur um ársverk
eftir atvinnugreinum og fyrir árin 1991-1997 tók Þjóðhagsstofnun saman
áætlanir með sambærilegum ársverkatölum. Heimildirnar um ársverkin voru
vinnuvikur (upphaflega „slysatryggðar vinnuvikur“) en þær voru gögn
skattyfirvalda sem Hagstofan vann úr tölur um notkun vinnuafls. Við
tilkomu tryggingagjalds í ársbyrjun 1991 voru vinnuvikur ekki lengur
grundvöllur að álagningu tryggingagjalds eins og verið hafði og gerði
Þjóðhagsstofnun áætlanir eins og fyrr var nefnt. Ársverkatalningin var
birt á grundvelli ISIC-1968 staðalsins öll þau ár sem ársverk voru talin.
Engar tölur um kynjaskiptingu eru fáanlegar í þessum heimildum en hins
vegar eru tölur eftir landshlutum tiltækar og eru þær birtar í sérstakri
töflu fyrir árin 1963-1997.
Árið 1991 hóf Hagstofa Íslands gerð
vinnumarkaðsrannsókna en þær voru úrtakskannanir byggðar á svörum
einstaklinga um þátttöku þeirra á vinnumarkaði. Frá þeim tíma til dagsins
í dag hefur vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar verið helsta opinbera
heimildin um skiptingu starfandi einstaklinga eftir atvinnugreinum. Fyrir
árin 1991-2008 birti Hagstofan niðurstöður um atvinnugreinar samkvæmt
þágildandi atvinnuvegaflokkun ÍSAT-95 en innleiddi árið 2008 breytta
atvinnuvegaflokkun, ÍSAT08 sem er ennþá í gildi. Það ber að nefna að
umrædd flokkunarkerfi eru alþjóðleg að uppruna og hafa að meginmarkmiði
að að gera samanburð milli landa mögulegan. Í meðfylgjandi töflu en
leitast við að færa tölur áranna 1963-2007 til samræmis við núgildandi
atvinnuvegaflokkun, ÍSAT08.
Taflan um atvinnuvegaskiptinguna fyrir árin
1870-2016 byggir á fjórum flokkunarkerfum atvinnugreina en þar að auki er
gerð tilraun til þess að varpa fjölda ársverka í einstökum atvinnugreinum
1963-1990 yfir í fjölda einstaklinga í sömu grein. Taka verður slíkum
tölum með sérstakri varúð og ber að skoða sem nálgun. Þessar nálganir
hafa að meginmarkmiði að varpa ljósi heildstætt á atvinnuvegaþróunina í
lengra tíma ljósi. Ennfremur var nauðsynlegt að varpa tölum úr tveimur
atvinnuvegflokkunum eftir mismunandi leiðum yfir í ÍSAT08 svo niðurstöður
yrðu sambærilegar milli tímabila.